28.3.2006

Gaman

Í gær var hlýtt, líklega hlýjasti dagur ársins, súld og suddi en hlýtt.

Ég var úti að ganga og fannst allt fólk í kringum mig vera óvenju fallegt og áhugavert.

Held að þetta hafi verið í fyrsta skiptið síðan í október sem ég sé almennilega framan í fólk úti á götu. Það hefur bara rétt sést í nasavængina stingast út í gegnum húfur og trefla síðustu 4-5 mánuði.

Vááá, hvað þetta er skemmtilegt.

1 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

En hvað ég er ánægð fyrir þína hönd. Gleðilegt vor. Didda

12:41 f.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim