18.11.2007

Í dansskóla

Í haust byrjaði ég í konu salsa. Mér finnst það mjög gaman. Það var ekki fyrr en í 3ja tíma eða svo að ég fattaði að ég var í danskóla Heiðars Ástvaldssonar, alveg eins og þegar ég var krakki. Allt í einu fór -ein, tveir, þrír og krossa- að hljóma ansi kunnuglega. Svo gleymdi ég því í margar vikur að ég væri í danskóla Heiðars Ástvaldssonar þar til núna í síðasta tíma þá fengum við allar hláturskast. Þá leið mér aftur eins og ég væri 5 ára, alveg hreint ótrúlega gaman.
Ég vona bara að það verði framhaldsnámskeið eftir jól.

1 Ummæli:

Blogger Heiðrún sagði...

ohh, það er svo gaman að fá hlátursköst! Og svo er það líka hollt, held ég

8:41 f.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim