25.2.2008

pakk og bræðsla

Ég er farin að halda að það vaxi dót inní skápunum hjá mér. Ég pakka og pakka en samt er alltaf eitthvað eftir í skápunum. Úffídídúff! Annars bara svoldið gaman að vera að flytja, er búin að festa kaup á nokkrum nýjum og notuðum hlutum í nýja húsið og get bara ekki beðið eftir að koma mér fyrir. Þetta er bara allt að skella á. Merkilegt hvað það er einhvernvegin meira að flytja svona þegar maður er komin með litla manneskju með sér á ferðalagið.

Annars gengur lífsstílsbreytingin alveg glymrandi vel. Í síðustu viku bræddi ég 3 og 6/10 þyngdar smjörs af mannafitu. Skelfilegt þegar þetta er sett svona upp en það fóru sem sé 1800 gr til viðbótar og það eru svo mikið sem 8kg í allt á 5 vikum. Þetta er með ólíkindum alveg hreint. Ég er vongóð um að þetta eigi eftir að ganga ljómandi áfram þótt að það verði spennandi verkefni að fá skemmtilegt og ferskt grænmeti fyrir vestan.

Núna þarf ég hinsvegar að koma mér í háttinn svo ég hafi orku til að klára að flokka, pakka og stafla á morgun.

6 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Ekki nógu gott hjá mér síðasta vika. Bara -300 gr. Poppkornið í bíóinu á laugardag og rjómaterta og pönnsur hjá mömmu á sunnudag hafa líklega gert gæfumuninn. Nú verður maður að taka sig á.

8:48 f.h.  
Blogger Heiða sagði...

Til hamingju, frábært hjá þér!

9:35 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Þú ert nottla duglegust sko ;) Kvitt kvitt

12:08 e.h.  
Blogger Heiða sagði...

Hún á afmæli í dag húná ammmælí dag hún á aaaaaaafmæææææællll'ún Si-iiiiiiiiiiiiif. (trommtrommtromm í borð og lær) Húúúúúúúúún á afmæl'íííííídaaaaaaaaaaaag! Veeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeeiiiiiiiiii!
Heiða

10:24 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið elsku Sif.
Gangi þér vel með búslóð og barn vestur á Tálknafjörð.
Kv. Una Ýr

11:14 f.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið.
Kveðja,
Dagný

12:00 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim