13.4.2006

Ég er búin að vera í Tívolí í allan dag. Prófaði öll tækin sem komin eru í gang og flest oftar en einu sinni... og tvisvar. Mér líður eins og líffærin í mér hafi hvert um sig fundið sér nýjan stað í líkamanum. Ég er sæl og glöð.
Í fyrramálið held ég í sveitaferð til Svíþjóðar. Í sumarhús sem er eins og klippt út úr Astrid Lindgren bók, með fljótandi sauna útá vatni og ég veit ekki hvað og hvað. Er meira að segja með íslensk pákskaegg í farteskinu.
Endalaus sæla.

Ég óska mér og ykkur til hamingju með páskafríið


Verð með íslenska númerið mitt í símanum

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Gleðilega Páska og skemtu þér vel og vonandi nýturðu þess að borða eggið, ég fékk ekkert enda hef ekki gott af því.
love didda

1:00 f.h.  
Blogger Sif sagði...

takk takk, eggið var lítið og gott.
kveðja til ykkar allra.

7:44 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim