12.5.2009

Verðandi amma

Hann Mosi minn sleit barnskónnum uppúr áramótunum og fór að eltast við læðurnar í þorpinu. Um daginn sást hann ekki nema endrum og eins þegar hann kom úrvinda heim, borðaði vel og svaf svo þar til hann hafði aftur orku til að stökkva út. Nú er svo komið að hann er sterklega grunaður um að vera búinn að gera í það minnsta tvær læðurnar kettlingafullar og styttist í got hjá þeim. M0si hefur hinsvegar verið í rólegri kantinum undanfarið og í raun svo rólegur að ég hef haft af honum dálitlar áhyggjur.
Kristínu Björgu var tíðrætt um tíma um litlu systur sína sem hún sagði að ætti heima í Reykjavík. Núna á hún von á svona sirka 5-10 litlum fósturbræðrabörnum, það hlýtur að létta af mér pressuna fram eftir sumri :)

Fyrir ykkur sem lesið, Heiða og Sverrir :) þá er ég á suðurleið um helgina og verð í viku, það væri gaman að hitta á ykkur.

og fyrir Heiðu á meðan ég man: www.kristinbjorg.barnaland.is

ég sendi þér snöggvast tölvupóst með inngangsorðinu

3 Ummæli:

Blogger Smooth Salvatore Bruno sagði...

Þú verður allavega að koma til að ná í teið þitt.

10:05 e.h.  
Blogger Heiða sagði...

hæ, er að horfa á þig sitja í sófanum. geturu kannski bloggað bráðum? skal lofa að kommenta....hehehe

8:09 e.h.  
Blogger Heiða sagði...

hæ, er að horfa á þig sitja í sófanum. geturu kannski bloggað bráðum? skal lofa að kommenta....hehehe

8:09 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim