12.9.2005

Í dag eignaðist ég saumavél. Mér fannst það gaman. Ég er búin að laga nýju jógabuxurnar mínar og gömlu buxurnar mínar sem flæktust í tannhjóli um daginn og skemmdust. Mér finnst Fakta skemmtileg búð, þar er hægt að kaupa allskonar furðulegt og ódýrt dót innan um matvöruna þar á meðal saumavélar og tvinnabox. Í dag er ég búin að spóka mig um í buxum sem eru ekki lengur ónýtar og buxum sem eru passlega síðar. Fljótlega ætla ég að sauma meira.

4 Ummæli:

Blogger Heiða sagði...

Vúhú, til hamingju. vild'ég ætti saumavél.

3:24 e.h.  
Blogger Sif sagði...

Takk fyrir það, ég er mjög montin!

1:56 e.h.  
Blogger Sif sagði...

... og þú mátt fá hana lánaða ef hún flytur með mér til Íslands einhverntíman

1:56 e.h.  
Blogger Heiða sagði...

jibbí!

4:47 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim