19.9.2005

Tina

Í dag fór ég til útlanda með túristunni minni. Fórum til Malmö sem ég held nú alveg vatni yfir, allavega af svona á gráum hausdegi. Ég er samt viss um að ég fari aftur einhverntíman að prófa gufuböðin sem eru útí sjó.
Ég kynntist finnskri ógæfukonu, henni Tinu, sem settist við hliðina á mér á bekk og dundaði sér við að gera tilraunir á viðbrögðum fólks. Með henni sá ég að fólk heilsar ekki fallegu hæ-i en segir hvað klukkan er með bros á vör. Það fór ekki margt okkar á milli en við kvöddumst með kossi þegar hún stóð upp til að halda áfram tilraunum sínum á viðbrögðum fólks.

2 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju með klossana. FLOTTUSTU klossar sem ég hef séð.

11:34 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...


Þú lærir ekki dönsku á 3 vikum, belíf mí!!!! Ekki heldur á heilu ári. Vertu dugleg að "heingáta" með dönum í skólanum. Það er eina leiðin til að byrja að skylja hvað þetta fólk er að reyna að segja manni allan daginn.... Líka að horfa á DR1, ekki sápurnar sem eru á ensku... Fréttir og fréttatengdir þættir út í eitt mæ darling.
Kv
Gunni

3:38 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim