19.12.2005

Nenni ekki en ætla nú samt

Ég bara NENNI ekki að læra meira ég VEIT ALLT sem mig langar til að vita um Tísku og lúxux iðnaðinn og VIL ekki vita meira.
Ég HLAKKA óstjórnlega til að komast í jólafrí og það verður örugglega til þess að ég læri nú svoldið meira fyrir blessaða prófið. Það er komin hellings JÓL útum allt og þau eru alveg að fara framhjá mér, sem er nú kannski bara ágætt, ég mæti þá bara beint í jólabrjálæðið á Íslandi FERSK.
Þetta er hin besta þerapía, núna ætla ég barasta að hendast í meiri lestur.

5 Ummæli:

Anonymous Nafnlaus sagði...

Vertu dugleg, hlakka til að sjá þig á morgun.

7:10 e.h.  
Blogger Heiðrún sagði...

Heyrðu, hvað hét þetta græna eyturlifja-te sem þú varst að tala um um daginn ? og hvar fæst það.....er alveg að sofna, verð að halda mér vakandi!
Heiðrún

7:47 e.h.  
Blogger Sif sagði...

Það er ómögulegt að þú farir að sofa of mikið. Dópið heitir pharma green, fæst í Matas, bæði til sem te og sem töflur. Teið er skelfilega vont en hægt að gera það drekkanlegt með því að gera úr því íste t.d. með kannill og sítrónu. Ég óska þér velfarnaðar í eyturlyfjaneyslunni

9:20 e.h.  
Blogger Heiðrún sagði...

takk Sif, og gleðileg jól

2:43 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Amma þín biður að heilsa og hefur áhyggjur af Tátu sinni....

jólakveðja Jóna Gréta

6:50 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim