30.9.2005

Sveitin

Fór í sveitina til Lilju Jónu í gær og fór með henni í verslunarferð um úthverfin. Fékk hálfgert brjálæðiskast í Ikea þar sem ég keytpi dót í nýja herbergið mitt. Ílengdist í sveitinn og kom ekki heim fyrr en í dag. Fór áðan að skoða nýju íbúðina og er bara mjög hrifin. Æðisleg gömul íbúð. Ég var nú ekki búin að gera mér miklar hugmyndir svosem en ég hefði ekki einu sinni átið mig dreyma um að búa í svona fallegri íbúð. Stórir gluggar með breiðum gluggakistum sem hægt er að setja púða í og horfa út. Meira að segja útsýni, sést vel til himins. Ég er alveg ótrúlega heppin alltaf hreint. Svo býr þarna kisan Kisi sem verður reyndar að öllum líkindumm fluttur út áður en ég flyt inn.
Ég er lukkuleg á leið í matarboð í nýju íbúðinni.

3 Ummæli:

Blogger Lára sagði...

Oooo... Gaman að heyra (lesa). Til hamingju og hafðu það gott.

11:59 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Aldeilis frábærlega frábært. Gratulerer

6:56 e.h.  
Anonymous Nafnlaus sagði...

Til hamingju. Ég kem til baka frá Bornholm 29unda þannig að ég næ að sjá hana.
Brill
Gunni

1:24 e.h.  

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim