2.5.2008

jamm og já

Það hefur nú margt gerst síðan síðast. Lífið alveg svoleiðis í góðri sveiflu. Sumarið minnir á mögulega komu sína endrum og eins og við erum kátar mægðurnar. Við höfum verið svoldið á ferðinni, erum heima eins og er en á suðurleið á sunnudag enn og aftur. KB á ekki eins auðvelt með svona flakk og myndi henta svona flökku móður en hún hlýtur að venjast því á endanum, hún er svo mikill snillingur.
Af rýrnunarmálum er það helst að frétta (fyrir áhugasama) að talan stóð í -11.7 á þriðjudaginn. Það gengur síður að rýrna þegar ég er mikið á flakki enda erfitt að vera með sérþarfir þegar manni er boðið í mat og margt sem glepur hugann þegar um meira er að velja en Hópið.