13.10.2006

Kartöflumús

Kartöflumús með lambakjöti
Kartöflumús með ítölskum spagettíbollum
Kartöflumús með ristuðubrauði með linsoðnu eggi og spægipylsu
Kartöflumús með kartöflumús

Fékk ábendingu um kartöflur með rifsberjasultu og tómatsósu. Ég er ekki alveg viss með tómatsósuna en kartöflumús með rifsberjasultu hljómar vel.

11.10.2006

Órar um fæðutegundir

Nú er ég komin niðrí hámark 1 skál af kókópuffsi á dag. Hinsvegar er erfitt að komast í gegnum daginn án spægipylsu og appelsínu. Merkilegur fjandi.

Þar sem ég held að ég verji hverjum einasta dropa af hugmyndaflugi í vinnunni þykir mér líkilegt að ég breyti þessari síðu tímabundið í "óra um fæðutegundir", það virðist vera eina sviðið sem mig skortir ekki hugmyndaflug.